Þessi reiknir var útbúinn fyrir 4 ára gutta sem hefur gaman af tölum. Einungis unnið með tölur frá einum og uppí fimm.
Ef Internet Explorer er notaður þá þarf að vista skjalið niður á tölvuna en ekki opna það beint svo allt virki sem skyldi.
Þessi reiknir var útbúinn fyrir 4 ára gutta sem hefur gaman af tölum. Einungis unnið með tölur frá einum og uppí fimm.
Ef Internet Explorer er notaður þá þarf að vista skjalið niður á tölvuna en ekki opna það beint svo allt virki sem skyldi.
Nokkur orð um hvernig hægt er að bæta við línu neðst í fyrirfram ákveðna stærð af innsláttartöflu með VBA. Continue reading »
Annað skjal sem er á mörkunum á að teljast nytsamlegt. Þó eru eflaust einhverjir áhugamenn sem gætu séð sér not í því að kíkja á skjalið. Continue reading »
Mikið safn af alls kyns VBA lausnum, hugmyndum og sniðmátum er hægt að finna í leitarvélum á internetinu. Hér á eftir verður farið stuttlega yfir hvert hægt er að setja þennan kóða og létt dæmi um forritun sett fram. Sjálfur er ég tiltölulega nýbúinn að uppgötva möguleikana sem VBA bætir við Excel þannig að mögulegt er að eitthvað vanti uppá en þetta ætti þó að koma hlutunum af stað. Continue reading »
Er alveg á mörkunum að flokkast sem nytsamlegt skjal. Þó má vera að einhverjir sem eru að leika sér að núvirðingu detti á skjalið.
Þetta skjal er byggt ofan á lánareikninn ógurlega. Continue reading »
Á þessum síðustu og verstu hefur það reynst ágæt búbót að halda strimlabókhald fyrir heimilið. Þess utan hefur þetta verið ágæt leið í að halda líkamlegu formi í „ásættanlegu“ ásigkomulagi, því það hefur reynst erfitt að réttlæta KFC þegar summutalan fyrir skyndibitann er skoðuð í lok mánaðar.
Eftirfarandi skjal er unnið upp úr skjali sem birtist á heimasíðu Umboðsmanns skuldara (neðri hlekkurinn).
Ekkert lykilorð þarf til þess að aflæsa flipum í skjalinu.
Af lagernum.
Einfaldur Excel lánareiknir þar sem hægt er að skoða greiðsluflæði miðað við jafnar afborganir eða jafnar greiðslur (annuitet). Afborgunum, vöxtum og höfuðstól er stillt upp yfir tímabil á grafi.
Nytsamlegur að því leyti að hægt er að lengja tímabilið á milli greiðslna, sem flestir bankaheimasíðureiknar leyfa ekki. Bláu reitirnir eru til að slá gildi í.
Uppfært: Lánareiknir með möguleika á að greiða umfram á gjalddaga.
Uppfært 2: Lánareiknir með möguleika á að aðlaga höfuðstól að greiðslugetu. Virkja þarf macros svo takkinn virki. Stuðst er við goal seek og aðlagaður höfuðstóll fundinn út frá innstimpluðu gildi greiðslugetu (reitur „C17“) og fyrstu greiðslu sem greidd er (ein lína af VBA notuð til að geta notað svona líka fancy takka).