Aug 262013
 

Fyrir tæpum tveimur árum deildum við hér skjali sem hermir (simulates) allar umferðir í öllum deildum enska boltans á tímabilinu 2011-2012.

Nú höfum við farið yfir skjalið og lagfært nokkrar smávægilegar villur, bætt það lítillega, en fyrst og fremst uppfært það fyrir tímabilið 2013-2014.

Nokkur atriði varðandi skjalið:

  • Skjalið inniheldur saklausan macro sem þarf að virkja þegar það er opnað. Það er lykilatriði, ef spila á oftar en einu sinni.
  • Skjalið er á bjagaðri ensku. Beðist er velvirðingar á því.
  • Þegar tímabili allra deilda er lokið er hægt að endurræsa þær, ýmist með því að endurræsa hverja og eina eða allar í einu á overview síðunni. Þegar tímabil eru endurræst koma nýjar niðurstöður leikja.
  • Styrkleikur liðanna er reiknaður út frá stöðu deildarinnar í lok síðasta tímabils.
  • Hægt er að breyta styrkleika allra liða handvirkt á Settings síðunni (ásamt nafni).

Blóðheitir aðdáendur stakra liða eru vinsamlegast beðnir um að hafa í huga að þetta skjal er gert með afþreyingu í huga en ekki sem vísindalega nálgun á það hvernig lið muni standa sig á komandi tímabili.

  2 Responses to “Enski fótboltinn – Hermun fyrir tímabilið 2013-2014”

  1. comment

 Leave a Reply

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>

(krafist)

(krafist)

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.