Apr 202011
 

Mikið safn af alls kyns VBA lausnum, hugmyndum og sniðmátum er hægt að finna í leitarvélum á internetinu. Hér á eftir verður farið stuttlega yfir hvert hægt er að setja þennan kóða og létt dæmi um forritun sett fram. Sjálfur er ég tiltölulega nýbúinn að uppgötva möguleikana sem VBA bætir við Excel þannig að mögulegt er að eitthvað vanti uppá en þetta ætti þó að koma hlutunum af stað. Continue reading »

Apr 182011
 

Fyrsta fyrirspurn síðunnar barst fyrr í dag. Hún var eftirfarandi:

„Ég er að skrá íslenskar kennitölur og vil láta þær birtast þannig að það sé núll fremst ef fæðingardagurinn er minni en 10. Svo vil ég hafa strik á milli fæðingardagsins og síðustu fjögurra tölustafanna“

Þetta er nokkuð auðvelt að gera:

1. Velið þær cellur sem eiga að innihalda kennitölur. T.d. A column.
2. Hægrismellið og veljið format cells (eða veljið ctrl+1).
3. Undir number, farið í custom.
4. Skráið eftirfarandi í type: „0#####-####“. Sjá mynd 1.
5. Veljið OK.

Mynd 1

Mynd 1

Nú birtir Excel núll fremst þegar aðeins er um níu stafa kennitölu er að ræða og strik á milli fyrstu sex tölustafanna og næstu fjögurra.

Nú er bara að vona að google leitarvélin hendi inn fólki sem googlar “sex” en uppgötvar þess í stað töfraheima Excel.

Apr 182011
 

Á þessum síðustu og verstu hefur það reynst ágæt búbót að halda strimlabókhald fyrir heimilið. Þess utan hefur þetta verið ágæt leið í að halda líkamlegu formi í “ásættanlegu” ásigkomulagi, því það hefur reynst erfitt að réttlæta KFC þegar summutalan fyrir skyndibitann er skoðuð í lok mánaðar.

Eftirfarandi skjal er unnið upp úr skjali sem birtist á heimasíðu Umboðsmanns skuldara (neðri hlekkurinn).

Ekkert lykilorð þarf til þess að aflæsa flipum í skjalinu.

Apr 172011
 

Dæmi um reikni. Tengist grein þó ekki með beinum hætti.

Af lagernum.

Einfaldur Excel lánareiknir þar sem hægt er að skoða greiðsluflæði miðað við jafnar afborganir eða jafnar greiðslur (annuitet). Afborgunum, vöxtum og höfuðstól er stillt upp yfir tímabil á grafi.

Nytsamlegur að því leyti að hægt er að lengja tímabilið á milli greiðslna, sem flestir bankaheimasíðureiknar leyfa ekki. Bláu reitirnir eru til að slá gildi í.

Fyrir þá sem vilja styrkja síðuna þá er hægt að nálgast skjalið aflæst hér fyrir neðan – ef viðkomandi hefur áhuga á að skoða formúlur oþh.

 

Apr 172011
 

Við byrjum á einföldum keyrslum. Hér verður fjallað um meðaltal og vegið meðaltal.

Að reikna venjulegt meðaltal í Excel er auðvelt. Þú skrifar =average([cellur]) og ýtir á enter. Ef þú vilt t.d. taka meðaltal af cellum frá A1 til A10 þá skrifarðu „=average(A1:A10)“ í þá cellu sem þú vilt fá meðaltalið.

Að reikna vegið meðaltal er örlítið flóknara.

Segjum sem svo að þú sért með þrjú gildi sem hafa öll mismunandi vægi (sjá mynd 1). Þú vilt reikna meðaltalið út frá væginu, svokallað vegið meðaltal.

Mynd 1

Í þessu tilviki er notast við fallið sumproduct, sem tekur tvær talnarunur, margfaldar og leggur svo niðurstöðurnar saman.

Mynd 2

Mynd 2

Við veljum B2-B4 með músinni, höldum CTRL takkanum niðri og veljum C2-C4, lokum sviganum og ýtum á enter (sjá mynd 2).
Mynd 3

Mynd 3

Vegið meðaltalið reiknast 6,3 og allir ættu að vera sáttir.

Önnur leið væri að slá þetta inn handvirkt. Formúlan í C5 myndi líta þá svona út: =(B2*C2+B3*C3+B4*C4), en þetta er það sem sumproduct gerir án þess að sýna útreikninga.

Það er svo hægt að nota sumproduct á allt annan, skemmtilegri og flóknari hátt. Mögulega meira um það síðar.

Apr 152011
 

Excel.is

Á síðu þessari verður nytsemi Microsoft Excel gerð kunn, gagnlegum skjölum deilt og farið yfir marga af þeim óteljandi kostum við að nota Excel.

Enn er unnið að útliti síðunnar og uppsetningu og á næstum dögum verður síðum eins og “Um síðuna“, “Hafðu samband” og annað í þeim dúr bætt við. Ennfremur verður síðan Íslenskuð eftir bestu getu.

Verið óhrædd við að koma með ábendingar í formi athugasemda eða tölvupósta á excel@excel.is.