Mar 092015
 

Til að finna út númer hvað lína reits er er einfalt að skrifa =ROW() í viðkomandi reit og skilar það númer línunnar. Dæmi: ef =ROW() er skrifað í reit B25 er útkoman 25.

En hvað er skrifað til að finna hvaða stafur er á dálki reits?

Til að finna út staðsetningu reitar í skjali er notast við ADDRESS. ADDRESS krefst tveggja atriði: annars vegar númer raðar og hinsvegar númer dálks. Eins og áður kom fram er númer ráðar framkölluð með fallinu =ROW(). Númer dálks virkar eins, nema það ber heitið COLUMN.

Valkvæmt er svo að taka af festur úr staðsetningunni ($) með skipunum 1-4, þar sem 1 táknar með festum, 2 og 3 táknar hlutafestur og 4 táknar engar festur.

Til að finna staðsetningu reitar lítur þá fallið svona út:

=ADDRESS(COLUMN();ROW();4)

Útkoman er staðsetning reitar sem hún er skrifuð í.

Til að fá aðeins bókstafinn úr þessu falli þarf smá lagni með LEFT og FIND föllin:

=LEFT(ADDRESS(ROW();COLUMN();4);FIND(ROW();ADDRESS(ROW();COLUMN();4))-1)

Þessi formúla tekur formúluna að ofan (ADDRESS(COLUMN();ROW();4)) og setur í LEFT formúlu, sem spyr hversu marga stafi frá vinstri formúlan eigi að taka. Við leitum því að númerinu sem við á með ROW() og drögum einn frá til að fá hvar LEFT formúlan á að stoppa.

Útkoman er bókstafur staðsetningar reitsins.

Óhætt er að kópera formúluna að ofan í hvaða reit sem er í Excel fyrir bókstaf reitsins.

 Leave a Reply

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>

(krafist)

(krafist)

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.