Sep 182011
 

Síðunni barst fyrirspurn þess efnis að setja saman súlurit þar sem skiptar og óskiptar súlur sitja saman í hóp.

Notaður er grafvalmöguleikinn fyrir skiptar súlur (stacked column chart) og sá möguleiki notaður til þess að búa til skiptar súlur og óskiptar súlur samhliða. Galdurinn er að setja upp gögnin á réttan máta. Hér fyrir neðan er einfaldað dæmi sem ætti að vera hægt að heimfæra á önnur tilvik. Ein súlan á að vera þrískipt en á að standa með tveimur öðrum súlum sem eru óskiptar. Hugaði ekki að fleiri útfærslum við þessa framkvæmd en þær eru eflaust til.

Mynd 1

Til þess að byrja með eru gögnin valin á neðangreindan máta og grafvalmöguleikinn “stacked column chart” valinn.

Mynd 2

Því næst er nöfnunum sem við viljum fá á ásinn skipt inn fyrir tölurnar sem valdar voru. Það er gert með því að hægri smella á grafið og velja “Select Data”.

Mynd 3

Þá er edit valið fyrir hvaða breytu sem er af þeim sem eru á grafinu.

Mynd 4

Svo er bara að velja nafnabilið eins og við settum það inn. Muna að velja tómu reitina einnig svo þetta verði miðjujafnað.

Mynd 5

Þá er bara að laga aðeins til grafið og þétta bilið á milli en það er gert með því að hægri smella á súlu á grafinu og velja “Format Data Series” og fikta í “Gap width” í Series Options.

Mynd 6

Þá ætti grafið að líta nokkurn veginn svona út.

Mynd 7

Hægt er að setja tóma dálka við hægri og vinstri hlið gagnatöflunnar (alveg eins og tómir dálkar eru settir á milli) til að rýmka aðeins til hliðanna.

 Leave a Reply

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>

(krafist)

(krafist)

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.