Á Facebook síðu Excel.is barst fyrirspurn um einfalt skjal sem hjálpar til við að skipuleggja sumarleyfi starfsmanna. Hér er að neðan er það.
Í skjalinu þarf aðeins að velja ár í reit A1 og dagsetningar breytast í kjölfarið (1. maí – 15. september). Þá er bara að fylla inn nafnalista og þann dagafjölda sem viðkomandi á inni í “Réttindi” dálkinum.
Að því loknu er “x” eða hvað sem er slegið inn undir þær dagsetningar sem viðkomandi ætlar sér að vera í fríi og dagarnir teljast sjálfkrafa.
Orlofsskjal
Viðbót: Að beiðni lesanda er hér sama skjal fyrir allt árið:
Frídagar yfir heilt ár
Viðbót: Að beiðni lesanda er hér sama skjal, þar sem hægt er að bæta við auka frídögum.
Orlofsskjal V3.0
Viðbót: Að beiðni lesanda er hér sama skjal, nema fyrir vetrarorlof (1. okt. – 1. maí):
Vetrarorlof (1. okt-1.maí)
Viðbót: Að beiðni lesanda er hér viðveruskjal fyrir allt árið (1.maí-30.apríl), þar sem hægt er að skrá frí á orlofi, veikindi, veikindi barna, jarðarfarir og launalaust frí. Hver liður er svo talinn sérstaklega í þar til gerðum reit.
Eigið þið svona skjal fyrir allt árið, frídagar en ekki endilega orlofdagar.
Alveg sjálfsagt. Skjal fyrir frídaga yfir heilt ár hefur verið bætt við í færsluna að ofan.
Kv.
Finnur
http://www.excel.is
eigið þið svona skjal sem gæti verið á vetrarfrístímabili frá 1 október til 1 maí kv
Sæl Hallveig
Færslan hefur verið uppfærð og inniheldur nú sérstakt skjal sem hjálpar til við vetrarorlofið.
Kv.
Finnur
http://www.excel.is
takk kærlega fyrir þetta ég gæti svo vel notað slíkt skjal en ég þarf að setja tölur inn í stað lits vegna þess að vaktir eru mislangar og starfsfólk á vetrarfrí talið í klst þannig að það væri gott ef samtalan væri svo í klst ef það er hægt kv Hallveig
hvernig er það ef viðkomandi vill vera í 1/2 dag í fríi hvernig merkir þú það inn í skjalið ?
Sæl Birgitta
Þessi skjöl bjóða ekki upp á það að svo stöddu. Það er hægt að útbúa skjal þannig að skáð er prósenta í stað x, sem segir til um hversu hátt hlutfall dags viðkomandi var frá vinnu. En þá þyrfti gerð frís annað hvort að detta út eða færast á fleiri línur.
Kv.
Finnur