Nýlega fékk síðan fyrirspurn um það hvernig hægt sé að leggja saman eða telja tölur í mengi sem fylgja ákveðnum skilyrðum.
Segjum sem svo að þú sért með 50 tölur á bilinu 0 til 100 í reitum A1:A50. Þú vilt geta slegið inn ákveðna tölu á bilinu 0 til 100 í C1 reitinn og fá út fjölda tölustafa í menginu sem er yfir þeirri tölu í reitinn D1.
Þú notast við countif og slærð eftirfarandi formúlu í D1:
=COUNTIF(A1:A50;“>“&C1)
„>“ hlutinn táknar „meira en“ og „&“ límir viðkomandi skilyrði við C1, þar sem talan er slegin inn. Til að fá summu talna sem eru hærri en sú tala sem slegin er í C1 er COUNTIF einfaldlega skipt út fyrir SUMIF.
Hér eru svo gildin fyrir önnur skilyrði sem hægt er að nota í stað „>“:
„>“ = Meira en X.
„>=“ = Jafn og eða meira en X.
„<>“ = Ekki jafnt og X.
„<" = Minna en X.
"<=" = Jafn eða minna en X.
"=" = Jafnt og X (óþarfi að nota, þar sem COUNTIF([mengi];[tala]) skilar sömu niðurstöðu).