Nov 102015
 

Þetta skjal, yfir tölfræði leikmanna NBA deildarinnar, vann ég fyrir ári síðan. Nú hef ég uppfært skjalið fyrir nýbyrjað tímabil, 2015-2016.

Skjalið sýnir tölfræði leikmanna í NBA að meðaltali í leik, á hverjar 48 mínútur spilaðar og kvarði á bilinu 0-99, þar sem 99 táknar virkasta leikmanninn á hverja mínútu í flokki.

Hér eru helstu eiginleikar skjalsins:

  • Hægt er að uppfæra gagnagrunninn með því að smella á gráa hnappinn “Update stats”. Til að gera það þarf að vera búið að virkja skjalið (enable hnappur sem birtist þegar skjal er opnað). Leikið er í NBA deildinni á hverri nóttu, svo tilvalið er að uppfæra það í byrjun dags.
  • Skjalið raðar leikmönnum eftir hvað er valið “Sort by” reit. Hægt er að snúa röðinni við með því að haka í “Reverse order”.
  • Hægt er að sía út stöðu leikmanna eða lið leikmanna með því að fylla í reiti hægra megin við “Position” og “Team”.
  • Hægt er að leita að leikmönnum eða liðum hægra megin við “Search”. Ef ekki er hakað í search reitinn litast leikmenn og lið sem fylla leitarskilyrði. Ef hakað er í reitinn hverfur allt nema það sem finnst.
  • Hægt er að sjá tölfræði leikmanna á hverjar 48 mínútur, í stað spilaðs tíma með því að haka í reitinn “Per 48 min”.
  • Örlítill Macro fylgir skjalinu. Macroinn tengist hnappinum “Update stats” (sjá atriði 1) og sér hann um að uppfæra gagnagrunninn og skrá niður hvenær hann var síðast uppfærður.
  • Skjalið er á ensku til að höfða til stærri markhóps.
  • Ef eitthvað er óljóst eða má betur fara, þá endilega hafið samband á excel@excel.is eða í athugasemdum.

Skjalið er aðallega gert til að sýna möguleika Excel forritsins og til yndisauka fyrir NBA áhugafólk. Tölfræðin er sótt á síðuna Dougstats.com.

Öllum er velkomið að aflæsa því og skoða hvernig það er gert.

 Leave a Reply

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>

(krafist)

(krafist)

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.