Nov 262014
Mér hefur oft þótt erfitt að skoða tölfræði NBA leikmanna almennilega á skýran og skilmerkilegan hátt. Svo ég útbjó Excel skjal sem heldur utan um þá tölfræði sem ég fylgist með.
Skjalið sýnir tölfræði leikmanna í NBA að meðaltali í leik, á hverjar 48 mínútur spilaðar og kvarði á bilinu 0-99, þar sem 99 táknar virkasta leikmanninn á hverja mínútu í flokki.
Hér eru helstu eiginleikar skjalsins:
- Hægt er að uppfæra gagnagrunninn með því að smella á gráa hnappinn “Update stats”. Til að gera það þarf að vera búið að virkja skjalið (enable hnappur sem birtist þegar skjal er opnað). Leikið er í NBA deildinni á hverri nóttu, svo tilvalið er að uppfæra það í byrjun dags.
- Skjalið raðar leikmönnum eftir hvað er valið “Sort by” reit. Hægt er að snúa röðinni við með því að haka í “Reverse order”.
- Hægt er að sía út stöðu leikmanna eða lið leikmanna með því að fylla í reiti hægra megin við “Position” og “Team”.
- Hægt er að leita að leikmönnum eða liðum hægra megin við “Search”. Ef ekki er hakað í search reitinn litast leikmenn og lið sem fylla leitarskilyrði. Ef hakað er í reitinn hverfur allt nema það sem finnst.
- Hægt er að sjá tölfræði leikmanna á hverjar 48 mínútur, í stað spilaðs tíma með því að haka í reitinn “Per 48 min”.
- Örlítill Macro fylgir skjalinu. Macroinn tengist hnappinum “Update stats” (sjá atriði 1) og sér hann um að uppfæra gagnagrunninn og skrá niður hvenær hann var síðast uppfærður.
- Skjalið er á ensku til að höfða til stærri markhóps.
Ef eitthvað er óljóst eða má betur fara, þá endilega hafið samband á excel@excel.is eða í athugasemdum.
Skjalið er aðallega gert til að sýna möguleika Excel forritsins. Tölfræðin er sótt á síðuna Dougstats.com.
Öllum er velkomið að aflæsa því og skoða hvernig það er gert.
NBA tölfræði 2014-2015 tímabil
1 file(s) 1.38 MB
Virkilega skemmtileg tölfræði og mjög gaman að grúska í þessu skjali!