Orlofsskjal

 

Einfalt skjal sem hjálpar til við að skipuleggja sumarleyfi vinnustaða fyrir allt að 100 starfsmenn.

Það eina sem þarf að gera er að velja ár í reit A1 og dagsetningar breytast í kjölfarið. Þá er bara að fylla inn nafnalista og þann dagafjölda sem viðkomandi á inni í “Réttindi” dálkinum.

Að því loknu er “x” eða hvað sem er slegið inn í þær dagsetningar sem viðkomandi ætlar sér að vera í fríi og dagarnir teljast sjálfkrafa.

Pepsi deild kvenna 2015

 

Skjal sem sýnir úrslit leikja og stöðu Pepsi deildar kvenna tímabilið 2015.

Hægt er að slá inn úrslit handvirkt eða uppfæra úrslit leikja með þar til gerðum hnappi.

Ef þú vilt nota hnappinn til að uppfæra úrslitin sjálfvirkt þarftu að virkja lítilsháttar macro þegar skjalið er opnað.

Pepsi deild karla 2015

 

Skjal sem sýnir úrslit leikja og stöðu Pepsi deildar karla tímabilið 2015.

Hægt er að slá inn úrslit handvirkt eða uppfæra úrslit leikja með þar til gerðum hnappi.

Ef þú vilt nota hnappinn til að uppfæra úrslitin sjálfvirkt þarftu að virkja lítilsháttar macro þegar skjalið er opnað.

NBA tölfræði 2014-2015 tímabil

 

Leitarvél í Excel yfir tölfræði NBA leikmanna tímabilið 2014-2015. Skjalið sýnir tölfræði að meðaltali í leik, á hverjar 48 mínútur spilaðar og kvarði á bilinu 0-99, þar sem 99 táknar virkasta leikmanninn á hverja mínútu í flokki.

Hér eru helstu eiginleikar skjalsins:

  1. Hægt er að uppfæra gagnagrunninn með því að smella á gráa hnappinn. Til að gera það þarf að vera búið að virkja skjalið (enable hnappur sem birtist þegar skjal er opnað).
  2. Skjalið raðar leikmönnum eftir hvað er valið “Sort by” reit. Hægt er að snúa röðinni við með því að haka í “Reverse order”.
  3. Hægt er að sía út stöðu leikmanna eða lið leikmanna með því að fylla í reiti hægra megin við “Position” og “Team”.
  4. Hægt er að leita að leikmönnum eða liðum hægra megin við “Search”. Ef ekki er hakað í search reitinn litast leikmenn og lið sem fylla leitarskilyrði. Ef hakað er í reitinn hverfur allt nema það sem finnst.
  5. Hægt er að sjá tölfræði leikmanna á hverjar 48 mínútur, í stað spilaðs tíma með því að haka í reitinn “Per 48 min”.

Ef eitthvað er óljóst eða má betur fara, þá endilega hafið samband á excel@excel.is eða í athugasemdum.

Skjalið er aðallega gert til að sýna möguleika Excel forritsins. Tölfræðin er sótt á síðuna Dougstats.com.

Verðbólgureiknir

 

Skjal sem hjálpar að reikna peningavirði fram og aftur í tímann miðað við verðbólgu á íslandi frá 1939.

Uppfært 2. október 2015. Skjalið gildir nú til og með september 2015.

Uppfært 11. febrúar 2016. Skjalið gildir nú til og með janúar 2016.

Uppfært 29. maí 2017. Skjalið gildir nú til og með maí 2017.