Nov 262014
 

Mér hefur oft þótt erfitt að skoða tölfræði NBA leikmanna almennilega á skýran og skilmerkilegan hátt. Svo ég útbjó Excel skjal sem heldur utan um þá tölfræði sem ég fylgist með.

Skjalið sýnir tölfræði leikmanna í NBA að meðaltali í leik, á hverjar 48 mínútur spilaðar og kvarði á bilinu 0-99, þar sem 99 táknar virkasta leikmanninn á hverja mínútu í flokki.

Hér eru helstu eiginleikar skjalsins:

  1. Hægt er að uppfæra gagnagrunninn með því að smella á gráa hnappinn “Update stats”. Til að gera það þarf að vera búið að virkja skjalið (enable hnappur sem birtist þegar skjal er opnað). Leikið er í NBA deildinni á hverri nóttu, svo tilvalið er að uppfæra það í byrjun dags.
  2. Skjalið raðar leikmönnum eftir hvað er valið “Sort by” reit. Hægt er að snúa röðinni við með því að haka í “Reverse order”.
  3. Hægt er að sía út stöðu leikmanna eða lið leikmanna með því að fylla í reiti hægra megin við “Position” og “Team”.
  4. Hægt er að leita að leikmönnum eða liðum hægra megin við “Search”. Ef ekki er hakað í search reitinn litast leikmenn og lið sem fylla leitarskilyrði. Ef hakað er í reitinn hverfur allt nema það sem finnst.
  5. Hægt er að sjá tölfræði leikmanna á hverjar 48 mínútur, í stað spilaðs tíma með því að haka í reitinn “Per 48 min”.
  6. Örlítill Macro fylgir skjalinu. Macroinn tengist hnappinum “Update stats” (sjá atriði 1) og sér hann um að uppfæra gagnagrunninn og skrá niður hvenær hann var síðast uppfærður.
  7. Skjalið er á ensku til að höfða til stærri markhóps.

Ef eitthvað er óljóst eða má betur fara, þá endilega hafið samband á excel@excel.is eða í athugasemdum.

Skjalið er aðallega gert til að sýna möguleika Excel forritsins. Tölfræðin er sótt á síðuna Dougstats.com.

Öllum er velkomið að aflæsa því og skoða hvernig það er gert.

  One Response to “NBA tölfræði 2014-2015 tímabilið”

  1. Virkilega skemmtileg tölfræði og mjög gaman að grúska í þessu skjali!

 Leave a Reply

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>

(krafist)

(krafist)

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.