Oct 072011
 

Þegar nöfn vinnsluskjala breytast reglulega og eru t.d. vistuð eftir þeirri dagsetningu sem við á, getur verið gott að láta Excel skrá nafn skjalsins sjálfkrafa í viðkomandi skjal.

Þetta er hægt með smá klækjum.

Það fyrsta sem þarf að gera er að skrá formúluna sem sýnir staðsetningu skjals, nafn þess og sheet sem er opið í A2.

=cell(“filename”)

Þetta gefur okkur mismunandi niðurstöðu í hverri tölvu. Í mínu tilviki er niðurstaðan:

C:\Documents and Settings\finnurtorfi\Desktop\[nafnskjals.xlsx]Nafnsheets

Úr þessari runu má sía út nafnið og nafn sheetsins með eftirfarandi formúlum:

=MID(CELL(“filename”);FIND(“[“;CELL(“filename”))+1;(LEN(CELL(“filename”))-FIND(“[“;CELL(“filename”))-1)-(LEN(CELL(“filename”))-FIND(“]”;CELL(“filename”))))

Formúlan finnur nafnið með bland af MID, FIND og LEN formúlunum, ásamt upphaflegu CELL keyrslunni. Formúlan reiknar lengd nafnsins með LEN og FIND (notast við kennileitin “[” og  “]”) og dregur nafnið svo út með MID, út frá upphafsstaðsetningu nafnsins.

Mælt er með því að skjalið sem er viðhengt sé skoðað.

{filelink=49}

Vinsamlegast látið vita í e-mail (excel@excel.is) eða athugasemdum ef eitthvað er óskýrt eða má betur fara.

 Leave a Reply

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>

(krafist)

(krafist)

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.