May 102011
 

Það er nokkuð algengt aðgerð hjá Excel fíklum að vilja fjarlægja endurtekningar í gagnagrunnum. Fyrir daga Excel 2007 var þetta nokkuð snúið að framkvæma en þó ekki ómögulegt.

Hér er farið yfir nokkuð einfalda aðferð til að finna endurtekningar í einnar raðar gagnagrunni í Excel 2003 (og eldri útgáfum).

Gefum okkur að gagnagrunnurinn sé frá A2 til A40. Til að finna endurtekningar skal eftirfarandi formúla rituð í B2 selluna:

=IF(COUNTIF($A$2:A2;A2)>1;”Já”;”Nei”)

Við tökum formúluna í sundur og skoðum hvernig hún virkar:

COUNTIF($A$2:A2;A2)

Hér telur Excel hversu oft það sem er í sellu A2 hefur komið fyrir frá A2 til A2 (svæði sem er talið). Þessi formúla er svo dregin niður til B40 og þar sem fyrri hluti ($A$2) svæðisins sem talið er ($A$2:A2) er fest ($) með F4 hnappinum, þá er upphaf talningasvæðisins “akkerað” í A2 á meðan svæðið stækkar. Þegar komið er í sellu B40 lítur formúlan svona út:

COUNTIF($A$2:A40;A40)

Utan um þessa formúlu er svo if fall:

If(()>1;”Já”;”Nei”)

Þetta fall skilar “Já” ef talningin fer yfir 1, annars “Nei”. Þannig að ef formúlan í heild sinni telur fleiri en eitt tilvik, þá skilar hún “Já”. Og já er svarið við spurningunni “á að eyða þessari línu?”

Sjá sýniskjal fyrir tilbúna keyrslu.

Í Excel 2007 og 2010 er þetta hinsvegar mun einfaldara.

Þau gögn þar sem eyða á endurtekningum eru valin, farið í DATA og REMOVE DUPLICATES valið. Gríðarlega einfalt.

  2 Responses to “Að fjarlægja endurtekningar”

  1. það er þess virði að kaupa excel 2007 eða 2010 bara út af “remove duplicates” aðgerðinni

  2. Sammála. Og auðvitað til að losna undan óheppilegri litasamsetningu grafa í Excel 2003.

Leave a Reply to finnurtg Cancel reply

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>

(krafist)

(krafist)

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.